Italia Italia!!
Gleymdi að ég fjárfesti í flugmiða fyrir fjóra í gær. Við erum sem sagt á leiðinni til Ítalíu í júlí, ég sem ætlaði ekki að hreyfa mig úr landi í sumar og var með yfirlýsingar um að maður ætti nú bara frekar að ferðast á veturna hehem. En pabbi og mamma eru að fara í einhverja svaka veislu til Toscana í júlí og ég ákvað í gríni að gá hvað við fengjum miðana á og viti menn ég borgaði alveg heilar 60 þúsund fyrir okkur öll, sem sagt 15 þúsund á mann. Þannig að þetta var ákveðið á korteri. Ég er búin að sjá það að ég geri ekki neitt undirbúið. En sem sagt við gátum ekki sleppt þessu, okkur Gumma hefur alltaf langað að fara saman til Ítalíu. Verst er að Sigurrós og Sverrir verða farin, fara ákkúrat í byrjun júlí:( En þau fá þá kannski bara húsið okkar og bílinn í staðinn, ef þau vilja. Og aldrei að vita nema lítill hundur fylgi með hehe.
Ég er annars komin með nýtt eldhús. Tonkan ákvað að við myndum mála innréttinguna um helgina og það var meiriháttar hugmynd hjá henni. Ég var komin með svo mikið ógeð að ég gat ekki hugsað mér að fara útí þetta. Nú eigum við hina glæsilegustu eldhúsinnréttingu, mjallahvít og svartbæsuð borðplata. Verð að setja inn fyrir og eftir myndir þegar ég er búin að ganga almennilega frá. Þá eru geymslurnar og baðið eftir og úps erum líka með 2 fulningahurðir í ganginum hjá okkur sem fylla eiginlega ganginn og ætlum að reyna að koma þeim fyrir uppi og síðan rífa skúrinn og mála húsið að utan í sumar hehe og gleymdi líka garðinum, verðum að gera hann fínann. Úff Gummi ætti kannski bara að hætta í vinnunni. Það er gjörsamlega allt undirlagt heima hjá okkur núna.

4 Comments:
já ég er einmitt búin að vera að reyna að fá ykkur hingað í 3 ár en jæja, það verður bara að hafa það. Vði förum vonandi þá bara saman á næsta ári:)
Já það er ekkert svo mikið að gera hjá ykkur í sumar ha...
Annars getum við alveg passað hundinn, kannski annað mál með húsið;)
P.s. loksins fæ ég að sjá blogg,stóra sös
Viva Italia, frábært að fá miða á svona góðu verði. Þetta verður ljúft. Hlakka til að sjá eldhúsið kveðja Monna.
Hello. This post is likeable, and your blog is very interesting, congratulations :-). I will add in my blogroll =). If possible gives a last there on my blog, it is about the Massagem, I hope you enjoy. The address is http://massagem-brasil.blogspot.com. A hug.
Post a Comment
<< Home