Hjólahjól
Ég fór og keypti hjól handa drengjunum mínum um helgina. Valur var búin að vera veikur en fékk að fara með. Hjólinu hans Harðar Sindra var nefnilega stolið um daginn svo planið var að kaupa handa honum nýtt. Það var hins vegar ekkert á planinu að kaupa handa Val en þegar ég kem með þá inn í búðin þá fer hann beint uppá hjól sem passaði fyrir hann og byrjar að reyna að hjóla. Það gekk alveg ágætlega hjá honum, ég sem hélt að hann væri ennþá á þríhjólastiginu:) En síðan byrjar barnið að segja mér hvað hann elski mig mikið, hvað ég sé góð mamma að leyfa sér að koma með í búðina og knúsar mig í bak og fyrir og dííí hvað ég gat ekki annað en keypt handa honum líka hihi. Hann var nefnilega bara svona þakklátur fyrir að fá að koma með að kaupa hjól handa bróður sínum.


1 Comments:
ohh hann er svo mikið krútt! Það er ekki hægt að standast þessi stóru, bláu augu hans!
Post a Comment
<< Home