kannski ekki allt gleymt
Ég var að lesa bók um ljón fyrir Val. Bókin er á dönsku og allt í einu byrjaði Hörður Sindri að spyrja hvaða orð þýddi hvað. Þegar hann var komin með grunnatriðin á hreint eins og løve og angreb og svoleiðis, byrjaði hann að þýða það sem ég las. Ég var ótrúlega hissa, honum tókst þetta alveg. Mig grunar að dönskukunnátta hans liggi þarna bakvið einhvers staðar í dvala. Ég var allavega svakalega ánægð með guttann minn. Annars er hann byrjaður á skáknámskeiði, það eina sem hann fékkst til að fara í, ekki að ræða það að hann fari í fótbolta eða eitthvað þessháttar. Eftir að hann byrjaði þá sleppir hann ekki skáktölvunni sem við gáfum honum í fyrra. Ég get ekki kvartað yfir þessu hehe. En þið ættuð að sjá hann núna, búin að missa allar framtennurnar og var á tímabili að setja tannálfinn á hausinn því tannálfurinn átti bara 1000kr þegar fyrsta tönnin fór og eftir það var auðvitað ekki hægt að lækka upphæðina. Nýju tennurnar eru hlunkatennur og tannálfurinn kvíðir mikið fyrir tannréttingarútgjöldum:) Ég sé ekki hvernig þetta á allt saman eftir að komast fyrir í þessum gómi.


5 Comments:
hahahaha...... Hann getur þá allavegana borgað til baka þegar hann er búinn að mennta sig og orðinn moldríkur...
Sendu okkur mynd af drengnum
Vá þetta er ansi örlátur tannálfur þarna á Framnesveginum. Ég hélt að 100 krónur væri málið - en kannski hefur þetta eitthvað hækkað síðan tannálfurinn heimsótti mann síðast. Eins gott að kanna þetta mál nánar enda er von á tannálfinum hér á Víðimel innan skamms:)
Kveðja Birna
hs er alveg að verða uppáhaldsstrákurinn minn.
stórkostlegur maur! :)
Takk fyrir haha:)
Post a Comment
<< Home