Úff það kraumar í mér!
Nú er ég orðin reið, fyrst brá mér en nú er ég reið. Að hlusta á Ólaf F. Magnússon tala um að hann voni að lýðræðið fáið að ráða á borgarstjórnarfundinum. Lýðræði mæ as!! Flott að sjá Íslendinga loksins mótmæla almennilega. Nú er lögreglan að henda öllum út af pöllunum í ráðhúsinu, vegna velferðar og öryggis hahaha. Síðan segir Ólafur að þetta sé einungis einn hópur með skipulagðar aðgerðir og gerir þar með ótrúlega lítið úr reiði stórs hluta Reykvíkinga. Ég fór niður í ráðhús til að mótmæla og ég tilheyri ekki neinni ungliðahreyfingu (enda ekki mikill ungliði lengur), tilheyri reyndar engum flokki.


1 Comments:
Já finnst alveg frábært að fólk láti loksins í sér heyra, kominn tími til að við drullumst til að mótmæla. Vildi óska að ég gæti verið þarna á meðal og látið henda mér út.
Sverrir
Post a Comment
<< Home